Nám er vinna
by flokksgaedingar
Stúdentaráð Háskóla Íslands boðaði til fjöldamótmæla fyrir utan ráðuneyti menntamála í dag. Þangað mættu 20 manns eða jafnmargir og skipa stúdentaráð.
Tilefnið var þó misheppnaðra en mótmælin. Stúdentaráð vill ekki að skilyrði fyrir ríkisstyrktum námslánum sé að stunda 60% af fullu námi. Þeim finnst 30% nægjanlegt. Samt hafa námshreyfingar um allan heim barist fyrir því að láta fólk skilja að nám sé vinna.
Líkt og Ísland berjast fjölmargar þjóðir við að ná tökum á fjárlagahalla ríkisins. Sjálfsagt þætti mörgum erlendis námsmannahreyfingin íslenska standa frammi fyrir lúxusvandamáli að námsmennirnir þurfi að sætta sig við að skila 60% námsárangri miðað við annað sem þekkist í niðurskurði í þessum málaflokki.
JBH nefndi forvera þeirra „hrínandi dekurbörn velferðarþjóðfélagsins“ ef ég man þetta rétt.