Allt í plati
by flokksgaedingar
Þingmaðurinn Björn Valur Gíslason kom með réttmæta ábendingu á annars þunnu Alþingi í gær. Hún var sú að í nafni gagnsæis og bættra vinnubragða ætti Sjálfstæðisflokkurinn að birta endurgreiðsluferil á þeim styrkjum sem flokkurinn þáði frá FL Group og Landsbankanum í árslok 2006. Bjarni Benediktsson svaraði því til að sá ferill lægi fyrir og af orðum hans að dæma er um að ræða vaxtalaust lán og án verðbóta til sjö ára upp á 55 milljónir með jöfnum afborgunum.
Gott og vel en er flokkurinn í rauninni að greiða styrkinn til baka?
Ef við gerum ráð fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hefði þurft að greiða stýrivexti Seðlabankans frá því í október 2006 og fram til dagsins í dag (sem eru klárlega lægri vextir en Sjálfstæðisflokkurinn hefði í raun þurft að greiða) þá væri skuld þeirra komin í 94 m.kr.
Ef við hins vegar núvirðum endurgreiðslur á sjö árum og miðum við 7% vexti (innlán Seðlabankans sem eru aftur fremur lágir vextir) þá er núvirt verðmæti þeirra greiðslna sem Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að inna af hendi 45.3 m.kr.
Það vantar sem sagt 48.7 m.kr upp á að Sjálfstæðisflokkurinn sé í rauninni að endurgreiða þessa styrki með vöxtum og verðbótum.
Með öðrum orðum, frá sjónarhóli dagsins í dag er ávinningur Sjálfstæðisflokksins af þessum fjármálagjörningi (að taka við styrkjunum en endurgreiða þá síðan löngu seinna án vaxta og verðbóta) 48.7 m.kr.
Flokksgæðingar taka því heilshugar undir tillögu Björns Vals og hvetja Sjálfstæðisflokkinn til að setja upp lánareiknivél til að almenningur geti betur áttað sig á hversu lítið hann greiðir tilbaka af þessum styrkjum.
Framganga Björns Vals Gíslasonar var fullkomlega í takt við annað og hans eina erindi hans á þinginu. Hin falska málpípa meistarans frá Þistilfirði vildi að þessu sinni það til vinna að grugga þann grunna og fúla poll, sem Jóhanna Sigurðardóttir er hægt og örugglega að drekkja sér í.
Það er leitt að Flokksgæðingarnir finni sér ekki betri músu en þann innlenda gervimann. Hvað þá að þær tali um ábendingu hans sem réttmæta. Það er hún svo augljóslega ekki, eins og kom raunar fram í umræðunni.
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki að borga vaxtaberandi lán. Hann er að endurgreiða óafturkræfan styrk til óræðs lögaðila vegna þess að hann kýs að gera það. Allt tal um vexti í því samhengi er fráleitt.
Vilji menn hins vegar ræða um ógreidd lán Landsbankans til stjórnmálaflokka ættu bæði Flokksgæðinganir og Björn Falur Gíslason auðvelt með að finna nærtækari dæmi. Eða hvað varð um lánin inni í Landsbanka, sem vinstri flokkarnir sönkuðu að sér áður en þeir skiptu um kennitölur?
Það væri raunar fróðlegt að rifja það upp með tilliti til rannsóknar á einkavæðingu þess sama banka, en ríkissjóður þurfti að veita afslátt á umsömdu verði eftir að í ljós kom að hinn pólitíski hluti lánabókar bankans var skáldskap líkastur og enginn áhugi á endurgreiðslu. Höfðu þó verið gefin þau einkennilegu fyrirheit þeirrar sjálftökustéttar að ríkisstyrkir til flokkanna myndu ganga til bankans. Ábyrgðarmennirnir á þeim ósköpum eru ekki allir hættir í pólitík, en að vísu virðast þeir eiga erfitt með að svara nokkurri spurningu satt þessi misserin.